Snæfell í útrás!
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna það að Snæfellskjötið fæst nú í Reykjavík. Það er Fiskbúðin Höfðabakka sem hefur tekið í sölu okkar margrómaða, austfirka kjöt. Þar má finna bæði lamba- nautakjöt, ferskt og frosið. Má þar nefna lambasúpukjöt, nautahakk, grafið kjöt (bæði lamb og naut), nautalundir, ýmiskonar grillkjöt, kjötfars, lambalæri og lambakótilettur svo fátt eitt sé nefnt.
Hlökkum við mikið til áframhaldandi samtarfs við Fiskbúðina Höfðabakka!
Vinningshafi í apríl
Vinningshafi í mánaðarhappdrætti klúbbmeðlima var að þessu sinni Sunneva Flosadóttir. Við óskum henni til hamingju en hún fékk 5000 króna inneign hjá okkur!
Nettó
Nú hafa náðst fastir samningar við Nettó og má þar nálgast töluvert úrval af þeim vörum sem við höfum á vörulista okkar. Má þar nefna kjötfars, nautahakk, grillkjöt ýmiskonar, lambalæri ofl.
Með þessu samstarfi vonumst við til þess að viðskiptavinir okkar hafi betri aðgang að vörum frá Snæfelli enda er það krafa íbúa fjórðungsins að geta nálgast sínar heimavörur í verslunum svæðisins.
Enn er þó hægt að panta vörur beint frá okkur og má þá hafa samband á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringja í síma 471-2042.
Við þökkum góðar móttökur í Nettó fram að þessu, GLEÐILEGT SUMAR!
Páskakveðja
Snæfell-Kjötvinnsla og Sláturfélag Austurlands óskar viðskiptavinum sínum og austfirðingum öllum gleðilegra páska!
Við minnum einnig á að páskalambið frá Snæfelli fæst nú í Nettó ásamt úrvali af grillkjötinu okkar!
Meira í Nettó!
Frá og með morgundeginum, 30.mars, og fram á sunnudag verður hægt að nálgast einhverjar af vörum okkar í Nettó á Egilsstöðum.
Grillkjöt, krydduð læri á beini, hamborgarar og hakk er meðal þess sem boðið verður til sölu. Endilega nýtið ykkur tækifærið og kynnið ykkur grillkjötið okkar, nú fer að bresta á grilltími!
Please wait...

